Ari Leifsson til Kolding (Staðfest) - Dreymir um endurkomu í landsliðið

Mynd: Kolding

Mynd: Kolding
Danska félagið Kolding tilkynnti í dag um komu Ara Leifssonar til félagsins. Ari, sem er 25 ára miðvörður, skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2026.
Ari, sem er uppalinn í Fylki, kemur til Kolding frá Strömsgodset þar sem hann hefur verið síðustu fjögur tímabil. Samningur hans við norska félagið rann út og leitaði Ari annað.

TENGT EFNI
Davíð Ingvars til Kolding (Staðfest)
Ari á að baki fjóra A-landsleiki og í tilkynningu Kolding hafði hann eftirfarandi að segja:
„Ástæðan fyrir því að ég valdi Kolding IF var vegna metnaðar og framtíðarsýnar félagsins . Á tíma mínum hjá Kolding mun ég leitast við að verða betri leikmaður og leggja mitt af mörkum svo að félaginu gangi vel. Ég hlakka til að kynnast liðsfélögum mínum og búa til góðar minningar í Kolding og auðvitað spila minn fyrsta leik fyrir félagið."
Kristoffer Wichmann, þjálfari Kolding, segir að eitt af markmiðum Ara sé að verða enn betri leikmaður svo hann geti uppfyllt þann draum að snúa aftur í íslenska landsliðið.
Ari er mættur til móts við liðsfélaga sína í Tyrklandi þar sem undirbúningur fer fram fyrir komandi átök í B-deildinni.