Fotbolti.net
02.02.24 - 12:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Jerome Boateng í Salernitana (Staðfest)

Jerome Boateng.

Jerome Boateng.

Canon

Mynd: Getty Images

Þýski varnarmaðurinn Jerome Boateng er genginn í raðir Salernitana á Ítalíu. Hann kemur þangað á frjálsri sölu.
Hinn 35 ára gamli Boateng hefur verið án félags frá því hann yfirgaf Lyon í Frakklandi síðasta sumar.

Hann æfði með Bayern München fyrir yfirstandandi tímabil og var nokkuð nálægt því að semja við þýska stórveldið, en ekkert varð af því þar sem Bayern óttaðist það að fá mikla gagnrýni - út af vandræðum varnarmannsins utan vallar - ef samið yrði við hann.

Boateng var mikið í fréttum fyrir nokkru síðan þar sem hann var sakfelldur fyrir að hafa ráðist á fyrrum kærustu sína, Sherin Senler, þegar þau voru saman í fríi árið 2018. Boateng hefur einnig verið ásakaður um að hafa beitt aðra fyrrum kærustu, Kasia Lenhardt, andlegu og líkamlegu ofbeldi. Lenhardt framdi sjálfsvíg stuttu eftir að þau slitu sambandi sínu.

Núna er Boateng búinn að skrifa undir sex mánaða samning við Salernitana, sem er á botni ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Salernitana ætlar sér að gera allt til að halda sér uppi en félagið samdi einnig um að fá miðvörðinn Marco Pellegrino á láni frá AC Milan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.