Fotbolti.net
02.02.24 - 12:11
Elvar Geir Magnússon

Davíð Ingvars til Kolding (Staðfest)

Davíð Ingvarsson.

Davíð Ingvarsson.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Bakvörðurinn Davíð Ingvarsson er kominn í danska B-deildarfélagið Kolding. Hann hefur fengið félagaskipti og Karl Daní­el Magnús­son hjá knattspyrnudeild Breiðabliks staðfestir skipti hans við mbl.is.
Ari og Davíð verða samherjar í dönsku B-deildinni
TENGT EFNI

Ari og Davíð verða samherjar í dönsku B-deildinni

Davíð á að baki 93 leiki í efstu deild fyrir Breiðablik þar sem hann hef­ur skorað eitt mark. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu 2022.

Kolding situr í sjötta sæti dönsku B-deildarinnar en meðal leikmanna liðsins er Thomas Mikkelsen fyrrum sóknarmaður Breiðabliks. Dr. Football greindi frá því að varnarmaðurinn Ari Leifsson sé einnig á leið í raðir félagsins.

Breiðablik virðist vera að missa fleiri lykilmenn en sænska félagið Halmstad er í viðræðum um kaup á Gísla Eyjólfssyni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.