Fotbolti.net
01.02.24 - 19:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Kieffer Moore til Ipswich (Staðfest)

Kieffer Moore til Ipswich (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Kieffer Moore er genginn til liðs við Ipswich á láni út tímabilið frá Bournemouth.

Þessi 31 árs gamli framherji kom við sögu í átta leikjum í úrvalsdeildinni hjá Bournemouth og skoraði í 2-0 sigri liðsins gegn Crystal Palace í desember.

Moore var á mála hjá Ipswich frá 2017-2018.

„Það er frábært að þetta sé gengið í gegn því þetta hefur tekið tíma. Ég man þegar ég var hérna, ég hef unnið hart að mér síðan þá svo ég er í skýkunum að vera kominn aftur og get ekki beðið eftir því að byrja," sagði Moore.

Hann gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Preston á laugardaginn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.