Fotbolti.net
01.02.24 - 19:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Maxime Esteve til Burnley (Staðfest) - Skemmtilegt kynningarmyndband

Maxime Esteve til Burnley (Staðfest) - Skemmtilegt kynningarmyndband
Canon

Mynd: Burnley

Maxime Esteve er genginn til liðs við Burnley á láni frá franska liðinu Montpellier út tímabilið.

Þessi 21 árs gamli miðvörður er uppalinn hjá Montpellier og hefur spilað yfir fimmtíu leiki fyrir félagið.

„Mér líður mjög vel, ég er hæstánægður, um leið og ég heyrði af áhuganum vildi ég fara. Ég hef fylgst með úrvalsdeildinni síðan ég var barn og hafði ímyndað mér mig í deildinni. Stjórinn talaði vel um verkefnið og ég vildi strax vera hluti af því," sagði Esteve við undirskriftina.

Burnley er þekkt fyrir að kynna nýja leikmenn með skemmtilegum myndböndum og það var engin undantekning á því í þetta sinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.