Fotbolti.net
01.02.24 - 22:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Veliz til Sevilla á láni frá Tottenham (Staðfest)

Veliz til Sevilla á láni frá Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alejo Veliz er genginn til liðs við Sevilla á láni frá Tottenham.

Þessi tvítugi argentíski framherji gekk til liðs við Tottenham síðasta sumar og hefur komið við sögu í átta leikjum í úrvalsdeildinni. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið rétt fyrir áramót í 4-2 tapi gegn Brighton.

Hann hefur leikið 8 leiki fyrir u20 ára landslið Argentínu og skorað þrjú mörk.

Tottenham hefur ekki sagt sitt síðasta á félagaskipta markaðnum í janúar en útlit er fyrir að sænska ungstirnið Lucas Bergvall sé á leið til félagsins frá Djurgarden.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.