
John Fleck orðinn liðsfélagi Arnórs (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
John Fleck er genginn í raðir Blackburn frá Sheffield United á frjálsri sölu. Hann gerir samning út tímabilið.
Þessi 32 ára gamli Skoti gekk til liðs við Sheffield frá Coventry árið 2016 þegar liðið var í þriðju efstu deild en þremur árum síðar var hann kominn með liðinu í úrvalsdeildina.
Á sínu fyrsta tímabili í úrvalsdeildinni spilaði hann 30 leiki og skoraði fimm mörk, sem var hans besti árangur í deildakeppni í treyju Sheffield.
Hann var þriðji leikmaðurinn sem Blackburn fær til sín á lokadegi félagaskiptagluggans á eftir Billy Koumetio á láni frá Liverpool og Duncan McGuire frá Orlando City.




