FRÉTTIR16.01.2024, 08:47
Roma, sem situr í níunda sæti ítölsku A-deildarinnar, er búið að reka Jose Mourinho. Hans síðasti leikur við stjórnvölinn var 3-1 tap gegn AC Milan á sunnudaginn.
Í tilkynningu Roma þakka eigendurnir Dan og Ryan Friedkin honum fyrir framlag sitt og ástríðu í starfi.
Roma er með 29 stig, fimm stigum frá Fiorentina sem er í fjórða sætinu. Liðið hefur skorað 32 mörk og fengið á sig 24 í fyrstu 20 deildarleikjunum.
FRÉTTIR15.01.2024, 23:00
KFA er búið að næla sér í tvo uppalda Austfirðinga sem fluttu í Hafnarfjörðinn en ætla að taka slaginn á Austfjörðum í ár.
FRÉTTIR15.01.2024, 20:40
Southampton er búið að krækja í Joe Rothwell á lánssamningi frá Bournemouth sem gildir út tímabilið.
FRÉTTIR15.01.2024, 17:00
Manchester United hefur ákveðið að lána miðjumanninn Hannibal Mejbri til spænska úrvalsdeildarfélagsins Sevilla.
FRÉTTIR15.01.2024, 15:09
Alex Þór Hauksson var rétt í þessu kynntur sem nýr leikmaður KR. Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Öster þar sem samningur hans var útrunninn.
Alex er Álftnesingur sem lék með Stjörnunni áður en hann hélt í atvinnumennsku eftir tímabilið 2020. Alex skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2026.
„Það er okkur sönn ánægja að bjóða Alex velkominn til KR. Við bindum miklar væntingar við hann og erum sannfærð um að karakter hans, leiðtogahæfileikar og hugarfar muni hjálpa liðinu okkar að komast í fremstu röð aftur. Koma Alex staðfestir að KR nær að laða að sér bestu leikmennina sem í boði eru og teflir fram sterku liði á komandi tímabili," segir Gregg Ryder í tilkynningu KR.
FRÉTTIR15.01.2024, 14:23
Sóknarmaðurinn Murielle Tiernan hefur samið við Fram út tímabilið og mun því leika með meistaraflokki kvenna í Lengjudeildinni í sumar.
Frá þessu greinir félagið í tilkynningu sem birt var rétt í þessu. Hún mun spila frammi með Öldu Ólafsdóttur sem gekk í raðir Fram fyrr í vetur.
FRÉTTIR15.01.2024, 10:00
Srdjan Tufegdzic, Túfa, heldur áfram að þjálfa í sænsku B-deildinni en hann hefur verið ráðinn til Skövde AIK.
Túfa, sem er fyrrum þjálfari Grindavíkur og KA og var aðstoðarþjálfari Vals, var látinn fara frá Öster eftir síðasta tímabil.
Skövde hafnaði í 13. sæti deildarinnar og vann í umspili um áframhaldandi veru í deildinni. Túfa gerði tveggja ára samning við félagið.
FRÉTTIR14.01.2024, 18:04
FH hefur gengið frá samningum við Ídu Marín Hermannsdóttur en hún kemur til félagsins frá Val. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FH-ingum í dag.
FRÉTTIR14.01.2024, 13:56

Friðrik Þórir Hjaltason er genginn til liðs við Vestra en hann skrifar undir samning úr árið 2025.

FRÉTTIR14.01.2024, 08:00
Bosníumaðurinn Rade Krunic er genginn til liðs við Fenerbahce frá Milan.
FRÉTTIR13.01.2024, 15:20

Arnór Gauti Jónsson er genginn í raðir Breiðabliks en þetta staðfesti félagið rétt í þessu. Arnór skrifar undir samning út tímabilið 2026.

FRÉTTIR13.01.2024, 15:00

Kári Sigfússon er genginn í raðir Keflavíkur í Lengjudeildinni en þetta staðfesti félagið í dag.

FRÉTTIR13.01.2024, 12:00

David Datro Fofana, sóknarmaður Chelsea á Englandi, hefur gengið til liðs við Burnley á lánssamningi.

FRÉTTIR13.01.2024, 09:49
Bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson ætlar að taka eitt tímabil í viðbót með Val og spila með liðinu á komandi sumri. Í tilkynningu frá Val segir Birkir, sem verður 40 ára á árinu, að hann ætli að hjálpa liðinu að berjast um þá titla sem í boði eru hér á landi.
„Já þetta verður mitt síðasta tímabil með Val,“ segir Birkir Már sem er fluttur til Svíþjóðar með fjölskylduna.
„Við erum búin að koma okkur vel fyrir hérna úti en mér finnst ég enn hafa nóg fram að færa sem fótboltamaður og því langar mig að spila á eins háu leveli og mögulegt er.“
Hér að neðan má sjá tilkynningu Vals í heild sinni
FRÉTTIR13.01.2024, 06:00

Tindastóll hefur nælt í Gabrielle Johnson en hún kemur úr ameríska háskólanum Virginia Tech.

FRÉTTIR12.01.2024, 18:49
Kantmaðurinn knái Valdimar Ingi Jónsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Þrótt Vogum og gæti reynst gríðarlega mikilvægur í toppbaráttu 2. deildar á komandi leiktíð.
FRÉTTIR12.01.2024, 17:46
Karitas Tómasdóttir er búin að semja við Breiðablik eftir að hafa runnið út á gamla samningi sínum við félagið í haust.
FRÉTTIR12.01.2024, 17:30
Charlton Athletic hefur keypt Conor Coventry frá West Ham en kaupverð er ekki gefið upp.
Þessi 23 ára miðjumaður hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við enska C-deildarliðið.
FRÉTTIR12.01.2024, 16:25
Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir hefur skrifað undir samning við þýska úrvalsdeildarfélagið Duisburg sem gildir til næsta sumars.
Hún kemur til Duisburg frá Noregsmeisturum Vålerenga. Ingibjörg hafði verið með bestu leikmönnum norsku deildarinnar frá því kom frá Djurgården í Svíþjóð árið 2019.
FRÉTTIR12.01.2024, 15:38
Breiðablik hefur tilkynnt um það að tveir nýir meðlimir hafi bæst við starfsteymi meistarflokks karla.