FRÉTTIR31.01.2024, 12:30
Framherjinn Joey Gibbs, sem leikið hefur á Íslandi undanfarin tímabil, er haldinn til síns heima í Ástralíu og hefur samið við Blacktown City FC þar í landi.
Gibbs lék fyrst með Keflavík í þrjú tímabil áður en hann hélt í Garðabæinn á síðasta tímabili.
Hjá Stjörnunni var Gibbs óheppinn með meiðsli en almenn ánægja var með hans störf þar og hefði Stjarnan viljað halda honum innan sinna raða, en Gibbs vildi heim til Ástralíu.
FRÉTTIR30.01.2024, 18:57
Japanski landsliðsmaðurinn Daiki Hashioka skrifaði í dag undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Luton Town, en hann kemur til félagsins frá Sint-Truiden í Belgíu.
FRÉTTIR30.01.2024, 18:52
Enski varnarmaðurinn Nat Phillips er kominn til Cardiff City á láni frá Liverpool, en þetta tilkynnti félagið í dag.
FRÉTTIR30.01.2024, 17:49
Skoski varnarmaðurinn Scott Mckenna er mættur til danska félagsins FCK á láni frá Nottingham Forest.
FRÉTTIR30.01.2024, 17:30
Franski markvörðurinn Sarah Bouhaddi hefur skrifað undir stuttan samning við Arsenal.
FRÉTTIR30.01.2024, 15:25
Roma hefur fengið vinstri bakvörðinn Angelino frá RB Leipzig en þessi 27 ára Spánverji hefur verið á láni hjá Galatasaray.
Hann lenti í Ítalíu í gær til að gangast undir læknisskoðun.
FRÉTTIR30.01.2024, 13:30
HK tilkynnti í dag að Jana Sól Valdimarsdótir væri búin að semja við félagið til tveggja ára.
Jana verður 21 árs í næstu viku. Hún á að baki níu leiki fyrir yngri landsliðin en síðustu ár hafa einkennst af erfiðum meiðslum. Frá tímabilinu 2020 hefur Jana einungis komið við sögu í þremur KSÍ leikjum.
FRÉTTIR30.01.2024, 10:00
Kantmaðurinn Frosti Brynjólfsson er aftur genginn í raðir Hauka eftir að hafa leikið með Fylki undanfarin tvö tímabil.
FRÉTTIR30.01.2024, 09:09
Crystal Palace hefur gengið frá kaupum á kólumbíska hægri bakverðinum Daniel Munoz en hann kemur til félagsins frá Genk í Belgíu.
FRÉTTIR30.01.2024, 07:00

Arkadiusz Jan Grzelak, kallaður Arek, hefur skrifað undir eins árs framlenginu á samningi sínum hjá KFA.

FRÉTTIR30.01.2024, 06:00

Amelía Rún Fjelsted hefur skrifað undir samning við Fylki út tímabilið 2025 en hún gengur til liðs við félagið frá Keflavík.

FRÉTTIR29.01.2024, 18:00

Calvin Ramsay er genginn til liðs við Bolton frá Liverpool á láni út tímabilið.

FRÉTTIR29.01.2024, 17:30
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Það kemur engum á óvart að vinsælasta fréttin eru stórtíðindin af Jurgen Klopp sem hefur ákveðið að hætta hjá Liverpool að loknu yfirstandandi tímabili.
FRÉTTIR29.01.2024, 15:00
Danski markvörðurinn Mads Kikkenborg hefur yfirgefið Lyngby og gengið í raðir Anderlecht í Belgíu.
FRÉTTIR29.01.2024, 13:45
Varnarmaðurinn Heiðdís Lillýardóttir setti um helgina inn færslu á Instagram reikning sinn þar sem hún þakkaði svissneska félaginu Basel fyrir allt.
„Mikið um hæðir og lægðir en umfram allt er ég þakklát fyrir frábæra fólkið sem ég kynntist og vináttuna sem ég eignaðist fyrir lífstíð," skrifaði Heiðdís.
FRÉTTIR29.01.2024, 13:13
Barbára Sól Gísladóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Breiðablik en hún kemur til félagsins frá Selfossi sem féll úr Bestu deildinni á síðasta tímabili.
Barbára er fjölhæfur leikmaður sem hefur þó mest spilað í bakverði.
FRÉTTIR29.01.2024, 11:56
Varnarmaðurinn Caglar Söyuncu hefur gengið í raðir Fenerbahce á láni frá Atletico Madrid út tímabilið. Þessi fyrrum leikmaður Leicester náði ekki að vinna sér inn sæti hjá spænska liðinu.
Söyuncu var kynntur með myndbandi sem Taha Hashim fréttamaður Guardian finnst fara yfir strikið, við leyfum ykkur annars að dæma um það.
FRÉTTIR28.01.2024, 12:39

Hin 19 ára gamla Henríetta Ágústsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá HK.

FRÉTTIR28.01.2024, 11:08

Sacha Boey er genginn til liðs við Bayern Munchen frá Galatasaray.

FRÉTTIR27.01.2024, 21:22
Spænski þjálfarinn Xavi hættir með Barcelona eftir þetta tímabil en hann greindi sjálfur frá þessu eftir 5-3 tapið gegn Villarreal í kvöld.