Kikkenborg seldur til Anderlecht (Staðfest) - Minnir á Hannes

Mads Kikkenborg.

Mynd: Anderlecht

Mads Kikkenborg.

Mynd: Anderlecht
Danski markvörðurinn Mads Kikkenborg hefur yfirgefið Lyngby og gengið í raðir Anderlecht í Belgíu.

TENGT EFNI
Freysi: Minnir mig á Hannes Halldórsson
Kikkenborg hefur átt mjög gott tímabil með Lyngby og hefur meðal annars verið undir smásjá félaga í ensku úrvalsdeildinni.
„Hann minnir mig rosalega á Hannes Halldórsson," sagði Freyr Alexandersson, fyrrum þjálfari Lyngby, í samtali við Fótbolta.net fyrir nokkru síðan. Hann var þar að tala um Kikkenborg.
Freyr þjálfaði Hannes í íslenska landsliðinu á sínum tíma en Hannes er besti landsliðsmarkvörður sem Ísland hefur átt.
Kikkenborg er 24 ára gamall en hann mun núna berjast við Kasper Schmeichel um stöðu í markinu hjá Anderlecht. Talið er að kaupverðið sé um 1,3 milljónir evra.
Hákon Rafn Valdimarsson var orðaður við Anderlecht áður en hann fór til Brentford á Englandi núna á dögunum.