Fotbolti.net
29.01.24 - 11:56
Elvar Geir Magnússon

Söyuncu kynntur hjá Fenerbache (Staðfest) - Er þetta myndband of mikið?

Caglar Söyuncu.

Caglar Söyuncu.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Caglar Söyuncu hefur gengið í raðir Fenerbahce á láni frá Atletico Madrid út tímabilið. Þessi fyrrum leikmaður Leicester náði ekki að vinna sér inn sæti hjá spænska liðinu.

Söyuncu var kynntur með myndbandi sem Taha Hashim fréttamaður Guardian finnst fara yfir strikið, við leyfum ykkur annars að dæma um það.
Söyuncu vonast til að nýta tækifærið hjá Fenerbahce til að sanna sig á ný eftir eitt og hálft tímabil án nægilega mikils spiltíma.

Fenerbahce er með afar sterkan leikmannahóp í ár og er í harðri titilbaráttu við Galatasaray, sem er einnig búið að styrkja hópinn sinn umtalsvert að undanförnu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.