Fotbolti.net
27.01.24 - 21:22
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Xavi hættir með Barcelona eftir tímabilið (Staðfest)

Xavi hættir með Barcelona eftir tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski þjálfarinn Xavi hættir með Barcelona eftir þetta tímabil en hann greindi sjálfur frá þessu eftir 5-3 tapið gegn Villarreal í kvöld.
Xavi tók við Barcelona árið 2021 og snéri því aftur heim eftir nokkurra ára dvöl í Katar.

Á síðasta tímabili gerði hann liðið að spænskum meistara og þá vann liðið Ofurbikar Spánar árið áður.

Nú hefur hann tekið ákvörðun um að hætta með Barcelona eftir slakt gengi á þessari leiktíð. Liðið er tíu stigum frá toppnum og úr leik í spænska bikarnum, en að vísu komst liðið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

„Ég vil tilkynna það að þann 30. júní mun ég hætta þjálfun hjá Barcelona. Það þarf að taka aðra stefnu og sem Barcelona-maður get ég ekki leyft þessu ástandi að viðgangast,“ sagði Xavi á heimasíðu félagsins.

Bætti hann þá við að þetta sé besta mögulega niðurstaðan í þessu máli.

„Það þarf að breyta um dýnamík hjá félaginu. Það að ég yfirgefi Barcelona er besta fyrir alla aðila. Ég er sá sem er mest ábyrgur hér, þannig leikmennirnir eru loksins frjálsir,“ sagði hann ennfremur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.