Fotbolti.net
28.01.24 - 12:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Henríetta í Stjörnuna (Staðfest)

Henríetta í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Stjarnan

Hertz

Hin 19 ára gamla Henríetta Ágústsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá HK.

Hún spilaði 48 leiki með HK og skorað þrjú mörk. Hún fótbrotnaði illa í leik liðsins gegn Fram í Mjólkurbikarnum snemma á síðustu leiktíð en er að koma til baka eftir meiðslin.

Hún á að baki 11 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim eitt mark.

„Henríetta bætist því við ungan og ferskan leikmannahóp Stjörnunnar sem undirbýr sig af krafti fyrir verkefnin framundan en Deildabikar kvenna hefst 9. febrúar með leik gegn Víkingi á Samsung velli. Við bjóðum Henríettu innilega velkomna til Stjörnunnar og tökum vel á móti henni," segir í tilkynningu frá félaginu.

Komnar
Esther Rós Arnarsdóttir frá FH
Heiðdís Emma Sigurðardóttir frá Gindavík (var á láni)
Jóhanna Melkorka Þórsdóttir frá Fram (var á láni)
Mist Smáradóttir frá Grindavík (var á láni)
Thelma Lind Steinarsdóttir frá Fram (var á láni)
Henríetta Ágústsdóttir frá HK

Farnar
Heiða Ragney Viðarsdóttir í Breiðablik
Jasmín Erla Ingadóttir í Val
Sædís Rún Heiðarsdóttir til Noregs
Eyrún Vala Harðardóttir í Fram (var á láni hjá HK)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.