Fotbolti.net
28.01.24 - 11:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Boey til liðs við Bayern (Staðfest)

Boey til liðs við Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Sacha Boey er genginn til liðs við Bayern Munchen frá Galatasaray.

Kaupverðið er 35 milljónir evra þar sem fimm milljónir eru árangurstengdar. Þá fær Galatasaray hlut af söluverði ef hann yfirgefur Bayern.

Liðin munu einnig spila tvo æfingaleiki þar sem liðin skipta ágóðanum jafnt á milli sín.

Hann gerir fjögurra og hálfs árs samning við félagið.

„Draumurinn er orðinn að veruleika. Það er heiður fyrir mig að spila fyrir jafn stórt félag og Bayern," sagði Boey.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.