Heiðdís yfirgefur Basel (Staðfest)

Mynd: Basel

Mynd: Basel

Varnarmaðurinn Heiðdís Lillýardóttir setti um helgina inn færslu á Instagram reikning sinn þar sem hún þakkaði svissneska félaginu Basel fyrir allt.
„Mikið um hæðir og lægðir en umfram allt er ég þakklát fyrir frábæra fólkið sem ég kynntist og vináttuna sem ég eignaðist fyrir lífstíð," skrifaði Heiðdís.

Hún er að yfirgefa svissneska félagið eftir að hafa verið þar í eitt ár.
Hún er 27 ára og kom einungis einu sinni við sögu á þessu tímabili. Hún var fimm sinnum utan hóps og fjórum sinnum ónotaður varamaður. Eftir komu sína frá Benfica í upphafi síðasta árs var hún í stóru hlutverki en það breyttist á þessu tímabili.
Ef hún kýs að koma heim til Íslands er nokkuð ljóst að hún verður eftirsóttur biti.
Hún er uppalin hjá Hetti en hefur einnig leikið með Selfossi og Breiðabliki á Íslandi.