Amelía Rún í Fylki (Staðfest)


Mynd: Fylkir


Mynd: Fylkir

Amelía Rún Fjelsted hefur skrifað undir samning við Fylki út tímabilið 2025 en hún gengur til liðs við félagið frá Keflavík.
Amelía er 19 ára gömul og spilar sem kantmaður en hún á að baki 101 leik fyrir Keflavík. Hún lék átta leiki í Bestu deildinni síðasta sumar þegar Keflavík hafnaði í 2. sæti neðri hlutans og bjargaði sér því frá falli.
Hún verður áfram í Bestu deildinni þar sem Fylkir tryggði sér þátttökurétt með því að enda í 2. sæti í Lengjudeildinni síðasta sumar.
Hún á að baki 8 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.




