Fotbolti.net
29.01.24 - 13:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Barbára Sól í Breiðablik (Staðfest)

Barbára Sól í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Breiðablik

Hertz
Barbára Sól Gísladóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Breiðablik en hún kemur til félagsins frá Selfossi sem féll úr Bestu deildinni á síðasta tímabili.

Barbára er fjölhæfur leikmaður sem hefur þó mest spilað í bakverði.
Hún er fædd árið 2001 og á að baki þrjá A-landsleiki, sá þriðji kom sumarið 2022. Á síðasta ári lék hún tvo leiki með U23 landsliðinu.

Hún er uppalin á Selfossi en tekur nú skrefið í Kópavoginn. Hún var orðuð við danska félagið Bröndby þar sem hún lék á láni seinni hluta árs 2022, en þau skitpi gengu ekki í gegn.

Hún er sjötti leikmaðurinn sem nýi þjálfarinn Nik Chamberlain hefur fengið í vetur.



Komnar
Anna Nurmi frá Finnlandi
Barbára Sól Gísladóttir frá Selfossi
Heiða Ragney Viðarsdóttir frá Stjörnunni
Jakobína Hjörvarsdóttir frá Þór/KA
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir frá Þrótti R.
Kristín Magdalena Barboza frá Sindra
Harpa Helgadóttir frá FH (var á láni)
Hildur Lilja Ágústsdóttir frá HK (var á láni)
Mikaela Nótt Pétursdóttir frá Keflavík (var á láni)

Farnar
Hafrún Rakel Halldórsdóttir til Danmerkur
Helena Ósk Hálfdánardóttir í Val
Valgerður Ósk Valsdóttir í FH (var á láni)
Bergþóra Sól Ásmundsdóttir til Örebro
Taylor Marie Ziemer til Hollands
Toni Deion Pressley í Aftureldingu

Samningslausar
Clara Sigurðardóttir
Laufey Harpa Halldórsdóttir
Halla Margrét Hinriksdóttir
Margrét Lea Gísladóttir
Barbára Sól í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Hrefna Morthens

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.