Bolton fær Ramsay á láni frá Liverpool (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Calvin Ramsay er genginn til liðs við Bolton frá Liverpool á láni út tímabilið.
Ramsay var á láni hjá Preston fyrri hluta tímabilsins en fékk lítinn spiltíma og Liverpool kallaði hann því til baka en hann er nú farinn aftur á lán.
Ramsay er tvítugur skoskur hægri bakvörður sem gekk til liðs við Liverpool frá Aberdeen árið 2022. Hann spilaði tvo leiki fyrir Liverpool en meiddist síðan illa og var frá út tímabilið eftir að hafa gengist undir aðgerð.
Jón Daði Böðvarsson er leikmaður Bolton en liðið er í 2. sæti í þriðju efstu deild en liðið mætir Blackpool í bikarkeppni neðri deildanna á morgun.




