Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25158 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR12.01.2024, 11:03

Jakob Franz gerir fjögurra ára samning við Val (Staðfest)

Jakob Franz Pálsson hefur skrifað undir samning við Val. Frá þessu greinir félagið rétt í þessu. Jakob sem fæddur er árið 2003 kemur til Valsmanna frá Venezia á Ítalíu en hann lék með KR í Bestu deildinni síðasta sumar. Valur og Venezia komust að samkomulagi um að Jakob yrði leikmaður Vals og er samningurinn til fjögurra ára.

FRÉTTIR12.01.2024, 10:30

Maatsen kominn á lán til Dortmund (Staðfest) - Framlengdi við Chelsea

Varnarmaðurinn Ian Maatsen er kominn til Borussia Dortmund í Þýskalandi, þar sem hann verður á láni út tímabilið. Áður en Maatsen undirritaði lánssamninginn þá framlengdi hann samning sinn við Chelsea til 2026. Þessi 21 árs leikmaður hefur komið við sögu í 15 leikjum fyrir Chelsea á tímabilinu en aðeins þrisvar í byrjunarliðinu.

FRÉTTIR11.01.2024, 17:47

Óskar Örn fær félagaskipti í Víking (Staðfest)

Óskar Örn Hauksson er kominn með leikheimild með Víkingi en hann hefur fengið félagaskipti frá Grindavík þar sem hann lék á síðasta tímabili. Óskar var í vetur ráðinn styrktarþjálfari Víkings og í viðtali í kjölfar þeirra tíðinda vildi hann ekki staðfesta að skórnir væru komnir upp í hillu. Óskar hefur æft með Víkingi í vetur og sagði þjálfarinn Arnar Gunnlaugsson í viðtali að Óskar hefði verið bestur á æfingu.

FRÉTTIR11.01.2024, 17:35

Magne Hoseth tekur við Lyngby af Frey (Staðfest)

Norðmaðurinn Magne Hoseth hefur verið ráðinn nýr þjálfari Lyngby. Hann tekur við starfinu af Frey Alexanderssyni sem var ráðinn til Kortrijk í Belgíu á dögunum.

FRÉTTIR11.01.2024, 17:30

Fullyrt að Aron sé að ganga í raðir Breiðabliks

Á X-reikningi hlaðvarpsþáttarins <i>Gula Spjaldið</I> er sagt frá því að Aron Bjarnason sé búinn að velja Breiðablik. Þar er sagt að hann velji Breiðablik fram yfir Val og að Valsmenn hefðu verið búnir að undirbúa blaðamannafund þar sem kynna átti Aron sem nýjan leikmann félagsins. Aroni hafi hins vegar snúist hugur á síðustu stundu.

FRÉTTIR11.01.2024, 09:55

Aron Sigurðarson í KR (Staðfest)

Aron Sigurðarson hefur skrifað undir samning við KR sem gildir út næstu þrjú keppnistímabil. Vesturbæjarstórveldið greinir frá þessum tíðindum í morgunsárið.

FRÉTTIR10.01.2024, 19:53

Klara Bjartmarz lætur af störfum hjá KSÍ (Staðfest)

Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, lætur af störfum hjá sambandinu í lok febrúar og tekur til annarra starfa hjá Landhelgisgæslu Íslands þann 1. mars en þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ í dag.

FRÉTTIR10.01.2024, 18:37

Halldór Jón í Fylki (Staðfest)

Halldór Jón Sigurður Þórðarson mun spila með Fylki næstu tvö tímabilin en hann gekk í raðir félagsins frá ÍBV í dag.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.