Telma Hjaltalín heim í Aftureldingu (Staðfest)


Mynd: Afturelding


Mynd: Afturelding

Telma Hjaltalín Þrastardóttir er komin aftur heim í Aftureldingu en hún gerir samning út komandi tímabil.
Telma er uppalin í Aftureldingu en yfirgaf félagið árið 2013. Hún lék með FH sumarið 2022 og skoraði 10 mörk þegar liðið tryggði sér sigur í deildinni. Hún lék ekkert á síðustu leiktíð þar sem hún var ólétt.
“Það er alltaf frábær saga að fá leikmann eins og Telmu heim, reynsla hennar og þekking nýtist öllum leikmönnum félagsins. Telma hefur getu til að breyta leikjum upp á sitt einsdæmi og mun hún hafa jákvæð áhrif á liðið innan vallar sem utan. Að fá Telmu heim til félagsins sýnir þann metnað sem félagið hefur sérstaklega þegar kemur að því að styrkja liðið.” sagði Perry Mclachlan þjálfari liðsins.
Afturelding leikur í Lengjudeildinni næsta sumar en liðið hafnaði í 5. sæti deildarinnar síðasta sumar.






