Fotbolti.net
11.01.24 - 09:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aron Sigurðarson í KR (Staðfest)

Aron Sigurðarson.

Aron Sigurðarson.

Canon

Mynd: KR

Aron Sigurðarson hefur skrifað undir samning við KR sem gildir út næstu þrjú keppnistímabil.

Vesturbæjarstórveldið greinir frá þessum tíðindum í morgunsárið.
„Aron hefur ákveðið að snúa aftur til Íslands eftir farsælan feril í atvinnumennsku erlendis og erum við í skýjunum yfir því að KR hafi orðið fyrir valinu," segir Gregg Ryder, þjálfari KR.

„Það eru ekki bara ótvíræðir knattspyrnuhæfileikar hans heldur vinnusemin, karakterinn og leiðtoghæfileikarnir sem hann býr yfir sem við fögnum hvað mest að fá inn í okkar metnaðarfulla hóp."

„Aron mun tvímælalaust styrkja liðið okkar mikið og geta stuðningsmenn KR farið að hlakka til komandi tímabils."

KR kaupir Aron frá Horsens í Danmörku en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum þar. Aroni stóð til boða að skrifa undir nýjan samning við Horsens en hann hafnaði þeim samningi og er núna kominn heim til Íslands.

Hann er þrítugur leikmaður sem getur bæði spilað sem kantmaður og miðjumaður. Hann lék síðast á Íslandi tímabilið 2015 þegar hann lék með uppeldisfélaginu Fjölni. Ásamt því að spila með Horsens, þá hefur hann einnig leikið með Tromsö og Start í Noregi, og Union SG í Belgíu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.