Fotbolti.net
12.01.24 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bonucci mættur til Fenerbache (Staðfest)

Bonucci mættur til Fenerbache (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Leonardo Bonucci er genginn til liðs við Fenerbache en hann gerir samning út tímabilið.

Bonucci er algjör goðsögn hjá Juventus en þessi 36 ára gamli ítalski varnarmaður gekk til liðs við Union Berlin í sumar. Hann náði sér hins vegar aldrei á strik með liðinu.

Hann náði samkomulagi við þýska liðið um að rifta samningi sínum.

Bonucci hefur átt mjög farsælan feril en hann hefur unnið ítölsku deildina átta sinnum. Þá varð hann Evrópumeistari með ítalska landsliðinu árið 2021.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.