Sancho aftur til Dortmund (Staðfest)

Jadon Sancho.

Mynd: Getty Images

Jadon Sancho.

Mynd: Getty Images
Jadon Sancho er aftur orðinn leikmaður Borussia Dortmund í Þýskalandi. Þetta var staðfest núna rétt í þessu.
Sancho kemur til Dortmund á láni frá Manchester United út þetta tímabil.
Það er enginn kaupmöguleiki sem fylgir lánssamningnum en Dortmund borgar 3,5 milljónir evra fyrir að fá Sancho á láni, ásamt því að borga hluta af launum hans.
Sancho gekk til liðs við Man Utd frá Dortmund árið 2021 og hefur leikið 82 leiki og skorað tólf mörk. Hann hefur komið við sögu í þremur leikjum í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
Erik ten Hag, stjóri United, setti þennan 23 ára gamla Englending í bann eftir að hann gagnrýndi stjórann fyrir að velja sig ekki í hóp gegn Arsenal í byrjun tímabilsins. Sancho er núna mættur aftur til Dortmund og verður fróðlegt að sjá hvort honum takist að koma ferlinum aftur af stað í Þýskalandi.

BVB has signed Jadon Sancho on loan until the end of the season ??
— Borussia Dortmund (@BlackYellow) January 11, 2024
Currently with Manchester United, the loan contract runs until June 30th, 2024 ????? pic.twitter.com/j5At2fKx50