Brentford kaupir tyrkneskt ungstirni (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Yunus Emre Konak er genginn til liðs við Brentford frá tyrkneska félaginu Sivasspor. Kaupverðið er talið vera 4 milljónir punda.
Konak er 18 ára gamall varnarsinnaður miðjumaður en hann kom við sögu í 17 leikjum í tyrkneksu deildinni á þessari leiktíð.
„Yunus er spennandi ungur leikmaður og við erum mjög ánægðir að hafa fengið hann til Brentford. Teymið okkar gerði frábærlega að gera okkur kleift að ná honum fljótt. Við hlökkum til að vinna með honum og vonandi verður hann hluti að aðalliðinu í tæka tíð," sagði Phil Giles yfirmaður fótboltamála hjá Brentford.
Konak var á lista hjá The Guardian yfir bestu leikmenn sem eru fæddir árið 2006.






