Spence til liðs við Genoa (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Djed Spence er genginn til liðs við Genoa frá Tottenham á láni.
Þessi 23 ára gamli bakvörður gekk til liðs við Tottenham sumarið 2022 frá Middlesbrough. Hann var á láni hjá Leeds fyrri hluta tímabilsins en lék aðeins sjö leiki.
Hann snéri aftur í janúar og er farinn til Ítalíu.
Það er klásúla í samningnum um að Genoa geti keypt hann í sumar fyrir 10 milljónir evra.
Tottenham er að næla í miðvörðinn Radu Dragusin frá Genoa en Eric Dier er á leið til Bayern.






