Fotbolti.net
10.01.24 - 19:53
Brynjar Ingi Erluson

Klara Bjartmarz lætur af störfum hjá KSÍ (Staðfest)

Klara Bjartmarz er að hætta eftir 30 ár í starfi hjá KSÍ

Klara Bjartmarz er að hætta eftir 30 ár í starfi hjá KSÍ

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, lætur af störfum hjá sambandinu í lok febrúar og tekur til annarra starfa hjá Landhelgisgæslu Íslands þann 1. mars en þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ í dag.
Klara tók við sem framkvæmdastjóri KSí árið 2015 eftir að Þórir Hákonarson lét af störfum.

Til að byrja með var hún ráðin tímabundið en sex mánuðum síðar fundaði KSÍ og ákvað að ráða hana til frambúðar.

Klara hefur starfað fyrir KSÍ síðan í janúar 1994, lengst af við mótamál og landslið kvenna. Þá gegndi hún jafnframt starfi skrifstofustjóra KSÍ um árabil.

Hún lætur af störfum í lok febrúar og mun taka við nýju og spennandi starfi hjá Landhelgisgæslu Íslands.

Ráðning nýs framkvæmdastjóra er verkefni sem bíður næsta formanns KSÍ og stjórnar að loknu ársþingi KSÍ sem fer fram þann 24. febrúar næstkomandi.

„Mér er efst í huga þakklæti á þessum tímamótum, þakklæti fyrir þau forréttindi að fá að vinna við áhugamál mitt í 30 ár. Það er ekki sjálfgefið. Ég þakka samstarfsfólki mínu hjá KSÍ fyrir þolinmæðina, vináttu og stuðning sem og öllum þeim aðilum í knattspyrnuhreyfingunni sem ég hef átt samleið með öll þessi ár. Takk fyrir mig og sjáumst á vellinum,“ sagði Klara á heimasíðu KSÍ.

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, ætlar ekki að gefa kost á sér í næsta formannskjöri og er því ljóst að það verður nýr formaður og framkvæmdastjóri sem mun stýra KSÍ á næstu árum.

Formaðurinn þakkar Klöru fyrir magnað framlag hennar síðustu þrjá áratugi.

„Mig langar að þakka Klöru fyrir allt sem hún hefur gert fyrir íslenska knattspyrnu. Hún er að hætta hjá KSÍ á 30 ára starfsafmæli sínu sem er núna í janúar, hefur starfað af dugnaði, samviskusemi og heilindum öll þessi ár, í gegnum súrt og sætt, og á miklar þakkir skildar. Þekking hennar og reynsla er ómetanleg og hún hefur reynst mér afar vel á þeim tíma sem ég hef verið formaður KSÍ. Takk fyrir allt, Klara,“ sagði Vanda um Klöru.
Vanda Sigurgeirsdóttir og Klara Bjartmarz

Vanda Sigurgeirsdóttir og Klara Bjartmarz

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.