Óskar Örn fær félagaskipti í Víking (Staðfest)

Klár með keilurnar gegn Fylki um síðustu helgi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klár með keilurnar gegn Fylki um síðustu helgi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Örn Hauksson er kominn með leikheimild með Víkingi en hann hefur fengið félagaskipti frá Grindavík þar sem hann lék á síðasta tímabili.
Óskar var í vetur ráðinn styrktarþjálfari Víkings og í viðtali í kjölfar þeirra tíðinda vildi hann ekki staðfesta að skórnir væru komnir upp í hillu.
Óskar hefur æft með Víkingi í vetur og sagði þjálfarinn Arnar Gunnlaugsson í viðtali að Óskar hefði verið bestur á æfingu.

TENGT EFNI
Útilokar ekki að Óskar Örn spili með Víkingum - „Langbestur á æfingu"
Óskar er 39 ára og hefur hann skorað 88 mörk í 373 leikjum í efstu deild. Næsti leikur Víkings er gegn ÍR á laugardag í Reykjavíkurmótinu.