Hanna Kallmaier í FH (Staðfest)

Hanna Kallmaier.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Miðjumaðurinn Hanna Kallmaier hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH.
Kallmaier er með mikla reynslu úr Bestu deildinni en hún hefur spilað með ÍBV og Val hér á landi.
Kallmaier verður þrítug eftir viku en hún kom fyrst hingað til lands árið 2020 og lék alls 62 leiki í öllum keppnum fyrir ÍBV áður en hún gekk í raðir Vals.
Hún var búin að vera í byrjunarliði Íslandsmeistaranna í fyrstu fjórum umferðunum í fyrra þegar hún varð fyrir því óláni að meiðast illa á hné.
Það er vonandi fyrir FH að hún komi sterk til baka en Fimleikafélagið kom mjög á óvart í Bestu deildinni í fyrra og endaði að lokum í sjötta sæti eftir að hafa verið spáð neðsta sæti deildarinnar.