Fotbolti.net
11.01.24 - 17:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Magne Hoseth tekur við Lyngby af Frey (Staðfest)

Magne Hoseth.

Magne Hoseth.

Canon

Mynd: Getty Images

Norðmaðurinn Magne Hoseth hefur verið ráðinn nýr þjálfari Lyngby. Hann tekur við starfinu af Frey Alexanderssyni sem var ráðinn til Kortrijk í Belgíu á dögunum.
Hoseth hefur undanfarið stýrt KÍ Klaksvík í Færeyjum með mjög svo eftirtektarverðum árangri.

Klaksvík hefur fangað athygli fótboltaáhugamanna um allan heim með frábærum árangri. Klaksvík lagði Ferencvaros frá Ungverjalandi og Häcken frá Svíþjóð í forkeppni Meistaradeildarinnar á nýliðnu tímabili og fór í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar þar sem liðið náði meðal annars stigi gegn Lille frá Frakklandi.

Hoseth, sem er 43 ára gamall, er fyrrum landsliðsmaður Noregs en hann spilaði á sínum tíma með FC Kaupmannahöfn.

Hoseth skrifar undir samning til 2026 við Lyngby og hann mun núna byggja á þeim grunni sem Freyr byggði upp hjá félaginu.

Andri Lucas Guðjohnsen, Gylfi Þór Sigurðsson, Kolbeinn Birgir Finnsson og Sævar Atli Magnússon eru á meðal leikmanna Lyngby.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.