Dragusin gerir sex ára samning við Tottenham (Staðfest)


Mynd: Fabrizio Romano/X


Mynd: Fabrizio Romano/X
Radu Dragusin er genginn til liðs við Tottenham frá Genoa.
Tottenham greiðir 30 milljónir evra fyrir þennan 21 árs gamla rúmenska miðvörð. Hann skrifar undir samning sem gildir til ársins 2030.
Hann mun leika í treyju númer sex.
Dragusin hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með Genoa á tímabilinu en hann gekk til liðs við félagið á láni frá Juventus sumarið 2022 og gekk alfarið til liðs við Genoa síðasta sumar.
Hann valdi á milli þess að fara til Tottenham eða Bayern Munchen en hefur nú valið að fara til Englands. Hann er annar leikmaðurinn sem liðið fær til sín í janúar en Timo Werner gekk til liðs við Tottenham á láni frá RB Leipzig á dögunum.






