Dier kominn til Bayern (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Eric Dier er genginn til liðs við Bayern Munchen frá Tottenham.
Enska félagið greinir frá því að um lánssamning út tímabilið sé að ræða en samningur hans við Tottenham rennur út í sumar. Bayern hefur möguleika á að framlengja samning hans um ár í viðbót.
Dier gekk til liðs við Tottenham frá Sporting í Portúgal árið 2014 og lék 365 leiki fyrir félagið og skoraði 13 mörk. Hann hefur hins vegar ekki verið í plönum Ange Postecoglou og aðeins komið við sögu í fjórum leikjum í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
„Draumurinn er orðinn að veruleika. Sem barn langaði manni að spila einn daginn fyrir félag eins og Bayern. Bayern er eitt af stærstu félögum heims og er með svakalega sögu. Ég vil hjálpa liðinu með fjölbreytileika mínum í vörninni. Ég hlakka til að hitta nýju liðsfélagana og stuðningsmennina á Allianz Arena sem er í mínum augum einn besti leikvangur heims," sagði Dier við undirskriftina.
Your new number ???????? ????????????????????????????#MiaSanMia #ServusEric pic.twitter.com/Lqaw21DP1H
— FC Bayern Munich (@FCBayernEN) January 11, 2024






