Fotbolti.net
10.01.24 - 18:37
Brynjar Ingi Erluson

Halldór Jón í Fylki (Staðfest)

Halldór Jón hefur samið við Fylki

Halldór Jón hefur samið við Fylki

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Jón Sigurður Þórðarson mun spila með Fylki næstu tvö tímabilin en hann gekk í raðir félagsins frá ÍBV í dag.
Halldór spilaði tvö tímabil með Eyjamönnum þar sem hann lék 37 leiki og gerði 8 mörk í deild- og bikar.

Leikmaðurinn rifti samningi sínum við Eyjamenn síðasta haust og ákvað að leita á önnur mið.

Þessi 27 ára gamli leikmaður getur leyst ýmsar stöður á vellinum en hjá Víkingi spilaði hann bakvörð og þá lék hann framarlega á vellinum hjá ÍBV.

Áður spilaði hann með Aftureldingu, Fram, ÍR, Gróttu og Hetti, en nú er hann genginn í raðir Fylkis og mun spila með liðinu út næsta ár.

Komnir:
Guðmundur Tyrfingsson frá Selfossi
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson frá Keflavík
Aron Örn Þorvarðarson frá Haukum (var á láni)
Hallur Húni Þorsteinsson frá Haukum (var á láni)
Halldór Jón Sigurður Þórðarson frá ÍBV
Matthias Præst frá Danmörku

Farnir:
Sveinn Gísli Þorkelsson í Víking R. (var á láni)
Ólafur Karl Finsen hættur
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.