Fotbolti.net
11.01.24 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Mætti Blikum í Sambandsdeildinni og er nú farinn til Lyon (Staðfest)

Mætti Blikum í Sambandsdeildinni og er nú farinn til Lyon (Staðfest)
Canon

Mynd: Lyon

Franska félagið Lyon hefur fest kaup á belgíska vængmanninum Malick Fofana en hann kemur frá Gent.
Fofana er aðeins 18 ára gamall og hefur þegar spilað yfir 40 leiki fyrir aðallið Gent.

Hann byrjaði meðal annars í báðum leikjunum á móti Breiðabliki í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu á tímabilinu.

Lyon hefur nú fest kaup á honum fyrir 17 milljónir evra en hann verður þriðji belgíski leikmaðurinn til að spila fyrir Lyon á eftir Eric Deflandre og Jason Denayer.

Fofana á fjölmarga leiki að baki fyrir öll yngri landslið Belgíu og er talinn einn sá efnilegasti í heimalandinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.