FRÉTTIR13.11.2023, 16:30
Eiður Atli Rúnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK. Fyrri samningur var að renna út.
<i>„Eiður er fæddur árið 2002 og er uppalinn HK-ingur. Eiður spilaði 17 leiki í Bestu Deild karla með félaginu í sumar auk þess var hann einnig í æfingahóp U-21 landsliðs Íslands fyrr á árinu,"</I> segir í tilkynningu HK.
FRÉTTIR13.11.2023, 13:00
Elísabet Gunnarsdóttir stýrði um liðna helgi sínum síðasta leik hjá sænska félaginu Kristianstad.
FRÉTTIR13.11.2023, 11:30
Sænska úrvalsdeildarfélagið Norrköping hefur staðfest að félagið sé búið að reka stjórann Glen Riddersholm úr starfi.
FRÉTTIR13.11.2023, 10:56
Como 1907, félag í Seríu B á Ítalíu, tilkynnti í morgun að Moreno Longo væri ekki lengur þjálfari liðsins.
Leit stendur yfir að næsta þjálfara liðsins en til bráðabirgða mun Cesc Fabregas stýra liðinu. Fabregas tók við sem þjálfari unglingaliðsins í sumar þegar hann lagði skóna á hilluna.
FRÉTTIR12.11.2023, 20:28
Aron Jóhannsson verður ekki áfram í Fram en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu á <i>Instagram</i>.
FRÉTTIR12.11.2023, 08:00
Franska félagið Le Havre er búið að gera samning við kantmanninn þaulreynda André Ayew.
FRÉTTIR11.11.2023, 09:30
Rasmus Christiansen er búinn að kveðja liðsfélaga sína í Aftureldingu og heldur á ný mið. Hann staðfesti tíðindin í samtali við Fótbolta.net í gær.
Rasmus skrifaði undir eins árs samning við Aftureldingu síðasta vetur og er sá samningur að renna út.
Rasmus var í stóru hlutverki hjá Aftureldingu sem var nálægt því að vinna sæti í Bestu deildinni, liðið endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar og tapaði í úrslitaleik við Vestra um sæti í Bestu.
FRÉTTIR10.11.2023, 16:47
Kristján Atli Marteinsson samdi síðasta vetur við Þór og lék með liðinu á liðnu tímabili.
Hann skrifaði undir samning út tímabilið, sá samningur er að renna út og er orðið ljóst að hann verður ekki áfram.
FRÉTTIR10.11.2023, 15:09
Fylkir tilkynnti í dag að Unnar Steinn Ingvarsson væri búinn að framlengja samning sinn við Fylki.
Unnar, sem er fjölhæfur miðjumaður, skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2026. Hann getur einnig leyst stöðu bakvarðar.
FRÉTTIR10.11.2023, 08:30
Patryk Hryniewicki, Marko Zivkovic og Ósvald Jarl Traustason hafa allir framlengt samninga sína við Leikni og þá er ljóst að Omar Sowe verður áfram í herbúðum félagsins eftir að það virkjaði ákvæði í samningi hans.
FRÉTTIR10.11.2023, 08:00
Áki Sölvason hefur framlengt samning sinn við Dalvík/Reyni til næstu tveggja ára, en félagið greinir frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.
FRÉTTIR10.11.2023, 06:00
Kanadíska félagið Montreal hefur sagt skilið við argentínska þjálfarann Hernan Losada, en þetta kom fram í tilkynningu félagsins í gær.
FRÉTTIR09.11.2023, 18:37
Argentínski þjálfarinn Diego SImeone hefur framlengt samning sinn við Atlético Madríd til næstu fjögurra ára.
FRÉTTIR09.11.2023, 17:59
Jean-Philippe Gbamin er genginn í raðir franska B-deildarliðsins USL Dunkerque.
FRÉTTIR09.11.2023, 14:27
Haukur Páll Sigurðsson er nýr aðstoðarþjálfari hjá karlaliði Vals. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Frá þessu er greint í færslu félagsins á samfélagsmiðlum.
<i>„Hauk Pál þekkjum við vel enda verið leikmaður Vals frá árinu 2010, verið fyrirliði liðsins um àrabil og er leikjahæsti leikmaður Vals í efstu deild frá upphafi. Það er mikil ánægja að njóta krafta hans í nýju hlutverki. Við bjóðum Hauk Pál velkominn í teymið og hlökkum til samstarfsins!
"</I> segir í færslu Vals.
FRÉTTIR09.11.2023, 12:19
Valur tilkynnti í dag að Hallgrímu Heimisson hefði skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hann er ráðinn sem aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki kvenna.
Hann hefur undanfarin ár starfað fyrir Val við þjálfun yngri flokka með góðum árangri. <i>„Við bjóðum Hallgrím velkominn í teymið og hlökkum til samstarfsins!"</I> segir í tilkynningu Vals.
FRÉTTIR08.11.2023, 18:29
Hollenski þjálfarinn Alfred Schreuder er hættur með lið Al-Ain í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en Hernan Crespo mun taka við keflinu af honum.
FRÉTTIR07.11.2023, 23:47
Nuno Espirito Santo var í kvöld rekinn frá sádi-arabíska félaginu Al-Ittihad eftir rúmlega ár í starfi.
FRÉTTIR07.11.2023, 18:28
Olga Sevcova hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV og lánuð í kjölfarið til Fenerbahce í Tyrklandi. Þetta kemur fram á ÍBVSport í dag.
FRÉTTIR07.11.2023, 17:30
Notts County í ensku D-deildinni hefur gert stuttan samning við miðjumanninn reynslumikla, Dan Gosling.