Fotbolti.net
07.11.23 - 18:28
Brynjar Ingi Erluson

ÍBV lánar Olgu til Fenerbahce (Staðfest)

ÍBV lánar Olgu til Fenerbahce (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Olga Sevcova hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV og lánuð í kjölfarið til Fenerbahce í Tyrklandi. Þetta kemur fram á ÍBVSport í dag.
Lettneska landsliðskonan spilaði fjögur tímabil með ÍBV þar sem hún gerði 20 mörk í 69 deildarleikjum.

Í sumar skoraði hún 6 mörk í 20 leikjum er ÍBV féll niður í Lengjudeildina.

Olga skrifaði undir tveggja ára samning við ÍBV og var í kjölfarið lánuð til tyrkneska félagsins Fenerbahce. Hún snýr aftur til Vestmannaeyja í apríl.

Fenerbahce var fyrst sett á laggirnar árið 1995 en lagt niður eftir aðeins tvö tímabil. Það var síðan sett aftur á laggirnar fyrir tveimur árum.

Fenerbahce hefur farið vel af stað síðan það var sett aftur á laggirnar, en það komst í undanúrslit úrslitakeppninnar á fyrsta tímabili og hafnaði þá í öðru sæti á síðasta tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.