Fotbolti.net
10.11.23 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Áki framlengir við Dalvík/Reyni (Staðfest)

Áki framlengir við Dalvík/Reyni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Áki Sölvason hefur framlengt samning sinn við Dalvík/Reyni til næstu tveggja ára, en félagið greinir frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.
Áki, sem er 24 ára gamall, var einn af bestu leikmönnum Dalvíkur/Reynis sem vann 2. deildina og skoraði tólf mörk er liðið kom sér upp í Lengjudeildina. Þá var hann valinn í lið ársins í deildinni, sem var opinberað í sérstökum þætti Ástríðunnar.

Fótbolti.net greindi frá því á dögunum að Áki væri búinn að rifta samningi sínum við Dalvík/Reyni, en hann hefur nú ákveðið að framlengja dvöl sína.

Hann hefur nú skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið og mun því spila með því í næst efstu deild á næsta ári.

Áki er uppalinn í KA og á að baki sex keppnisleiki fyrir félagið í meistaraflokki. Hann hefur einnig spilað fyrir Magna, Völsung og KF í meistaraflokki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.