Fotbolti.net
13.11.23 - 10:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fabregas þjálfar Como til bráðabirgða (Staðfest)

Fabregas þjálfar Como til bráðabirgða (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Como 1907, félag í Seríu B á Ítalíu, tilkynnti í morgun að Moreno Longo væri ekki lengur þjálfari liðsins.

Leit stendur yfir að næsta þjálfara liðsins en til bráðabirgða mun Cesc Fabregas stýra liðinu. Fabregas tók við sem þjálfari unglingaliðsins í sumar þegar hann lagði skóna á hilluna.
Longo tók við Como í september í fyrra og hélt liðinu upp í B-deildinni, endaði með það í 13. sæti.

Como er í 6. sæti B-deildarinnar með 21 stig, átta stigum minna en Parma og ellefu stigum fyrir ofan fallsæti. Liðið vann útisigur gegn Ascoli um helgina.

Fyrsta æfing Fabregas með aðalliðið verður á miðvikudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.