Dan Gosling til Notts County á stuttum samning (Staðfest)

Dan Gosling.

Mynd: EPA

Dan Gosling.

Mynd: EPA
Notts County í ensku D-deildinni hefur gert stuttan samning við miðjumanninn reynslumikla, Dan Gosling.
Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu. Hann hafði verið án félags eftir að hann yfirgaf Watford í júlí síðastliðnum.
Gosling er með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa spilað í þeirri deild með Bournemouth, Newcastle og Everton.
Hinn 33 ára gamli Gosling skrifar undir samning við Notts County til 6. janúar en hann ætlar að hjálpa félaginu á meðan liðið er í meiðslavandræðum.
Notts County komst upp í ensku D-deildina fyrir tímabilið en þetta sögufræga félag hefur verið að gera frábærlega og er sem stendur í öðru sæti.