Kristianstad ræður tvo þjálfara í stað Elísabetar (Staðfest)

Elísabet Gunnarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elísabet Gunnarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elísabet Gunnarsdóttir stýrði um liðna helgi sínum síðasta leik hjá sænska félaginu Kristianstad.
Hún vann í tæp fimmtán ár hjá félaginu og gerði frábæra hluti, en félagið tilkynnti á dögunum að þetta væri hennar síðasta tímabil með liðið. Elísabet mun á næstunni hefja nýjan kafla á sínum fótboltaferli.
Kristianstad hefur núna tilkynnt um nýtt þjálfarateymi en þau Daniel Angergard og Johanna Almgren taka við liðinu af Elísabetu.
Angergard er aðeins 24 ára gamall en hann hefur verið aðstoðarþjálfari Elísabetu upp á síðkastið. Hann segist spenntur að byggja á þeim grunni sem Beta hefur lagt.
Almgren er 39 ára gömul og fyrrum landsliðskona Svíþjóðar. Hún spilaði með Gautaborg á sínum ferli en hún kom til Kristianstad fyrr á þessu ári og hefur verið í þjálfarateymi Elísabetu.
Kristianstad hafnaði í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á nýliðnu tímabili.

Klart: Tränarduo ersätter Gunnarsdottir i Kristianstad.https://t.co/JF8lzWdAZa pic.twitter.com/81PjwOSuYJ
— Fotbollskanalen (@fotbollskanal) November 12, 2023