Fotbolti.net
11.11.23 - 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rasmus kveður Aftureldingu (Staðfest)

Rasmus kveður Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Rasmus Christiansen er búinn að kveðja liðsfélaga sína í Aftureldingu og heldur á ný mið. Hann staðfesti tíðindin í samtali við Fótbolta.net í gær.

Rasmus skrifaði undir eins árs samning við Aftureldingu síðasta vetur og er sá samningur að renna út.

Rasmus var í stóru hlutverki hjá Aftureldingu sem var nálægt því að vinna sæti í Bestu deildinni, liðið endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar og tapaði í úrslitaleik við Vestra um sæti í Bestu.
Rasmus er 34 ára miðvörður sem kom í Aftureldingu frá Val. Rasmus sagði við Fótbolta.net að hann ætli sér að halda áfram í fótbolta, hann hafi enn mikla ástríðu fyrir boltanum og væri opinn fyrir því að spila í efstu eða næst efstu deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.