Aron Jóhannsson hættur í Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Jóhannsson verður ekki áfram í Fram en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu á Instagram.
Miðjumaðurinn gerði tveggja ára samning við Fram á síðasta ári og spilaði alla 27 leiki Fram í Bestu deildinni á nýafstaðinni leiktíð ásamt því að gera sex mörk.
Í lok október nýtti hann sér ákvæði í samningnum sem gerði honum kleift að rifta við félagið.
Á dögunum var Rúnar Kristinsson ráðinn til Fram en hann sagði á blaðamannafundi að hann vildi halda miðjumanninum knáa.
Framarar sendu frá sér tilkynningu í kvöld þar sem kemur fram að Aron sé farinn frá félaginu og er honum þakkað fyrir tímabilið.
Aron, sem er 29 ára gamall, hefur einnig spilað fyrir Hauka og Grindavík á ferli sínum.