Unnar Steinn framlengir við Fylki (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir tilkynnti í dag að Unnar Steinn Ingvarsson væri búinn að framlengja samning sinn við Fylki.
Unnar, sem er fjölhæfur miðjumaður, skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2026. Hann getur einnig leyst stöðu bakvarðar.
Unnar, sem er fjölhæfur miðjumaður, skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2026. Hann getur einnig leyst stöðu bakvarðar.

TENGT EFNI
Pétur ætlar vestur aftur - Tveir úr Fylki liggja undir feldi
Hann hefur leikið 61 leik í öllum keppnum á þeim þremur árum sem hann hefur verið hjá Fylki. Unnar er 23 ára og kom frá Fram eftir tímabilið 2020. Á liðnu tímabili kom Unnar einungis við sögu í fjórum deildarleikjum vegna meiðsla.
„Við fögnum því að okkar leikmenn haldi tryggð við félagið og taki þátt í því öfluga starfi sem er í gangi hjá okkur!" segir í tilkynningu Fylkis.
„Við fögnum því að okkar leikmenn haldi tryggð við félagið og taki þátt í því öfluga starfi sem er í gangi hjá okkur!" segir í tilkynningu Fylkis.



