Simeone framlengir við Atlético (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski þjálfarinn Diego SImeone hefur framlengt samning sinn við Atlético Madríd til næstu fjögurra ára.
Simeone tók við Atlético árið 2011 og hefur síðan þá unnið átta titla og stýrt 642 leikjum, en enginn hefur stýrt fleiri leikjum í sögu félagsins.
Á þessum tíma hefur hann unnið bæði La Liga og Evrópudeildina í tvígang.
Tvisvar sinnum hefur hann komið liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, en liðið tapaði í bæði skiptin fyrir nágrönnum sínum í Real Madrid.
Simeone er ánægður í Madríd og hefur ákveðið að sýna hollustu sína með því að framlengja samning sinn til 2027.

?????? #Simeone2027
— Atlético de Madrid (@Atleti) November 9, 2023