Fotbolti.net
07.11.23 - 23:47
Brynjar Ingi Erluson

Nuno rekinn frá Al Ittihad (Staðfest)

Nuno rekinn frá Al Ittihad (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Nuno Espirito Santo var í kvöld rekinn frá sádi-arabíska félaginu Al-Ittihad eftir rúmlega ár í starfi.
Portúgalski þjálfarinn tók við Al Ittihad á síðasta ári og vann deildina á fyrsta tímabili.

Al Ittihad staðfesti í kvöld að Nuno væri horfinn á braut eftir slæma byrjun á tímabilinu og er þegar hafin leit að nýjum þjálfara.

Samband hans og franska framherjans Karim Benzema var þá sagt stirt og segja fjölmiðlar að það hafi spilað stóra rullu í brottrekstrinum.

Liðið er í 6. sæti deildarinnar með 21 stig, ellefu stigum frá toppliði Al-Hilal.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.