Fjórir framlengja við Leikni (Staðfest)

Omar Sowe verður áfram í efra Breiðholti

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ósvald er nú samningsbundinn til 2025

Patryk Hryniewicki, Marko Zivkovic og Ósvald Jarl Traustason hafa allir framlengt samninga sína við Leikni og þá er ljóst að Omar Sowe verður áfram í herbúðum félagsins eftir að það virkjaði ákvæði í samningi hans.
Patryk er 23 ára gamall varnarmaður sem er uppalinn í Leikni. Hann byrjaði á bekknum í sumar, en vann sig síðan inn í liðið og spilaði gríðarlega mikilvægt hlutverk í miðverðinum.
Hann skrifaði undir nýjan samning við félagið og gildir sá samningur til 2025..
Ósvald Jarl er 28 ára gamall og hefur verið á mála hjá Leikni síðustu sex ár. Hann er uppalinn í Breiðabliki, en fór sumarið 2013 á láni til Leiknis og líkaði vel við, en sneri ekki aftur fyrr en fjórum árum síðar og hefur verið þar allar götur síðan.
Samningur hans gildir einnig til 2025. Marko er uppalinn í Leikni eins og Patryk, en hann er 21 árs gamall bakvörður, sem er fyrrum fyrirliði í 2. flokki.
Hann spilaði sína fyrstu deildarleiki í sumar í bakverði og stóð sig vel, en samningur hans er til 2026.
Félagið hefur þá virkjað ákvæði í samningi framherjans Omar Sowe og er ljóst að hann spilar með liðinu á næsta tímabili. Samningur hans er því út næsta tímabil.
Sowe skoraði 12 mörk í Lengjudeildinni í sumar og var valinn besti leikmaður liðsins af leikmönnum og stuðningsmönnum félagsins og það með miklum meirihluta.