Þjálfari Róberts Orra rekinn (Staðfest)

Róbert Orri er á mála hjá Montreal

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Orri er á mála hjá Montreal

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kanadíska félagið Montreal hefur sagt skilið við argentínska þjálfarann Hernan Losada, en þetta kom fram í tilkynningu félagsins í gær.
Losada tók við Montreal í desember á síðasta ári en tókst ekki að koma liðinu í úrslitakeppni MLS-deildarinnar.
Liðið tapaði þá í úrslitum um kanadíska titilinn í júní en liðið laut í lægra haldi fyrir Vancouver Whitecaps, 3-2.
Vonbrigðatímabil hjá Montreal og hefur félagið brugðist við með því að reka Losada.
Íslenski varnarmaðurinn Róbert Orri Þorkelsson er á mála hjá Montreal, en hann kom aðeins við sögu í tíu leikjum með liðinu á tímabilinu.

Le CF Montréal met fin à sa relation professionnelle avec Hernán Losada >>> https://t.co/GSmehwi5Nd
— CF Montréal (@cfmontreal) November 9, 2023
CF Montréal parts ways with Hernán Losada >>> https://t.co/PwmKWRPR8t#CFMTL pic.twitter.com/Zrjod0f6Ng