André Ayew til Le Havre (Staðfest)

Andre og Jordan voru samherjar hjá Swansea.

Mynd: Getty Images

Franska félagið Le Havre er búið að gera samning við kantmanninn þaulreynda André Ayew.
Ekki er greint frá því hversu lengi samningurinn verður í gildi en talið er að hann sé til skamms tíma, eða einungis út núverandi keppnistímabil.
Le Havre hefur verið að gera fína hluti á upphafi tímabils og er með 14 stig eftir 12 umferðir.
Hinn 33 ára gamli Ayew lék síðast með Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni en hefur meðal annars verið á mála hjá Swansea City, West Ham United og Marseille á farsælum ferli. Auk þess er hann einn af ástsælustu fótboltamönnum í sögu Gana ásamt yngri bróður sínum Jordan Ayew, sem leikur fyrir Crystal Palace.

“How many injuried have we got?”.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) November 11, 2023
Kieran Trippier replying to Newcastle fan complaining…pic.twitter.com/OWsgUyC6hh