Fotbolti.net
09.11.23 - 12:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hallgrímur Heimis aðstoðar Pétur hjá Val (Staðfest)

Við hlið föður síns í stúkunni.

Við hlið föður síns í stúkunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Valur tilkynnti í dag að Hallgrímu Heimisson hefði skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hann er ráðinn sem aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki kvenna.

Hann hefur undanfarin ár starfað fyrir Val við þjálfun yngri flokka með góðum árangri. „Við bjóðum Hallgrím velkominn í teymið og hlökkum til samstarfsins!" segir í tilkynningu Vals.
Hallgrímur kemur til með að aðstoða Pétur Pétursson sem er aðalþjálfari Vals. Hallgrímur fyllir í skarðið sem Matthías Guðmundsson skilur eftir sig en hann tók við þjálfarastöðunni hjá Gróttu á dögunum. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir er einnig í teyminu hjá Val.

Hallgrímur er efnilegur þjálfari, fæddur 1996, og er han sonur Heimis Hallgrímssonar, fyrrum landsliðsþjálfara Íslands og núverandi þjálfara Jamaíku. Hallgrímur var orðaður við Fram á dögunum.

Í viðtali við Fótbolta.net á dögunum sagði Hallgrímur eftirfarandi: „Ég er spenntur að fara í teymi hjá einhverjum stórlax sem ég mun læra af."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.