Gbamin í frönsku B-deildina (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jean-Philippe Gbamin er genginn í raðir franska B-deildarliðsins USL Dunkerque.
Fílabeinsstrendingurinn var á mála hjá Everton í ensku úrvalsdeildinni, en fékk samningi sínum rift í sumar.
Everton keypti hann á 25 milljónir punda frá Mainz árið 2019, en miðjumaðurinn var mikið frá vegna þrálátra meiðsla og lék aðeins átta leiki.
Hann hefur einnig leikið fyrir CSKA Moskvu, Lens og Trabzonspor, en er nú kominn aftur til Frakklands.
Gbamin hefur samið við franska B-deildarliðið USL Dunkerque, en samningurinn gildir út tímabilið.
Dunkerque, sem er nýliði í B-deildinni, er í næst neðsta sæti með aðeins 9 stig eftir þrettán leiki.