Schreuder hættur með Al-Ain (Staðfest) - Crespo tekur við keflinu

Hernan Crespo

Mynd: Getty Images

Hernan Crespo

Mynd: Getty Images
Hollenski þjálfarinn Alfred Schreuder er hættur með lið Al-Ain í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en Hernan Crespo mun taka við keflinu af honum.
Schreuder hætti með Al-Ain aðeins sex mánuðum eftir að hafa tekið við, en áður stýrði hann liði Ajax, Twente, Hoffenheim og Club Brugge.
Al-Ain segir ástæðu viðskilnaðarins deilur milli Schreuder og aðstoðarmanna hans, en erlendir miðlar greina frá því að hann hafi hætt þar sem hann sé að taka við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu.
Fyrrum fótboltamaðurinn, Hernan Crespo, er að taka við Al-AIn, en hann mun fljúga til Sameinuðu arabísku furstadæmanna á næsta sólarhringnum til að ganga frá samningum.
Hann stýrði síðast Al-Duhail í Katar.

A preliminary agreement with Hernan Crespo #alainclub || @alainfcae pic.twitter.com/ZR6D7rcPwI
— Al Ain FC (@alainfcae_en) November 8, 2023